
Jón Þór Jakobsson, Aron Ingi Gestsson og Leó Smári Sigurjónsson ásamt Gunnari Davíð Gunnarsyni þjálfara
Fyrri hluti hnefaleikamótsins í Hafnarfirði fór fram í dag, en þar voru 5 diplomaleikir. Keppendurnir okkar þrír komu allir heim með ný diploma. Í kvöld kl. 20:00 verður svo keppt í áhugamannahnefaleikum á sama stað, Dalshrauni 10. Aðgangseyrir er 1.000 kr.
Smellið á mynd til að skoða frétt
Filed under: Viðburðir
Næstu helgi verður haldið debutmót fyrir byrjendur í diplomahnefaleikum. Þátt taka keppendur frá Hnefaleikafélaginu ÆSIR (HFÆ), Hnefaleikafélagi Hafnarfjarðar (HFH), Hnefaleikafélagi Reykjavíkur (HR) og Hnefaleikafélagi Reykjaness (HFR). Alls verða á milli 20-25 leikir.

Hafsteinn Smári Óskarsson
Hnefaleikafélagið ÆSIR (HFÆ) heldur mót í aðstöðu sinni sinni á Viðarhöfða 2 v/Stórhöfða í Reykjavík annað kvöld, laugardaginn 28. nóvember. Þau Ásdís Rósa Gunnarsdóttir og Hafsteinn Smári Óskarsson munu keppa fyrir hönd HFR. Mótið hefst kl. 20:00 og aðgangseyrir er 1.000 kr
Þetta er síðasta mótið sem haldið verður fyrir áramót og eru margar sérstaklega skemmtilegar viðureignir á dagskránni. T.d. má nefna að þær Ásdís og Berglind Frances Aclipen eru að mætast í þriðja sinn á einum og hálfum mánuði, en þær standa nú jafnar að vígi með sinn hvorn sigurinn.
Hafsteinn Smári mætir Kristjáni Orra Arnarssyni, ókrýndum unglingameistara í millivigt. Ef Hafsteinn hefur sigur er hann búinn að sigra alla keppinauta sína frá 60 kg upp í 75 kg og klárar árið taplaus. Kristján Orri hefur einnig átt frábært ár og hefur þegar unnið þrjá sigra síðan keppnistímabilið hófst í haust.
Í lokaviðureigninni mætast svo tvö mannýg naut, þeir Alexei Páll Siggeirsson og Vignir Ingi Bjarnason. Þeir sem þekkja til þeirra pilta vita að þeir eiga ekki eftir að taka hvorn annan vettlingatökum.
1. viðureign – Léttmillivigt drengja (70 kg) – 3 x 2 mín
Sigurbjörn Richter (HFH) vs Pétur Þór Sævarsson (HR)
2. viðureign – Sýningarviðureign – 3 x 2 mín
Steinar Thors (HR) vs Sigurjón Arnórsson (HR)
3. viðureign – Léttveltivigt drengja (63 kg) – 3 x 2 mín
Adam Freyr Daðason (HFH) vs Hinrik R. Helgason (HFÆ)
4. viðureign – Léttveltivigt karla (64 kg) – 3 x 2 mín
Gísli Rúnar Gunnarsson (HR) vs Ómar Annisius (HFÆ)
HLÉ
5. viðureign – Veltivigt kvenna (64 kg) – 3 x 2 mín
Ásdís Rósa Gunnarsdóttir (HFR) vs Berglind Frances Aclipen (HFÆ)
6. viðureign – Yfirþungavigt (+91 kg) – 3 x 2 mín
Baldur Fannar Arnarson (HFH) vs Þráinn Erlendsson (HFÆ)
7. viðureign – Millivigt drengja (75 kg) – 3 x 2 mín
Hafsteinn Smári Óskarsson (HFR) vs Kristján Orri Arnarsson (HFH)
8. viðureign – Millivigt (75 kg) – 3 x 3 mín
Alexei Páll Siggeirsson (HFÆ) vs Vignir Ingi Bjarnason (HFÆ)
Ásdís & Kolli: USA 2010







