
Hnefaleikamaður ársins, Hafsteinn Smári Óskarsson, varð í kvöld tvöfaldur Íslandsmeistari í hnefaleikum þegar hann sigraði Gunnar Gray Georgsson frá Hnefaleikafélaginu ÆSIR (HFÆ) 3-0. Í undanúrslitunum sem fram fóru á laugaradaginn sigraði hann Hinrik Ragnar Helgason (HFÆ), einnig 3-0.
Björn Snævar Björnsson tapaði naumlega fyrir Gunnari Þór Þórssyni frá Hnefaleikafélagi Reykjavíkur (HR) 2-1 og Gunnar Davíð Gunnarsson tapaði fyrir Valentyn Bukavin (HFÆ) 3-0.
Það var gaman að fylgjast með keppendum á móti Hnefaleikafélags Hafnarfjarðar (HFH) í kvöld, bæði því hvað þeir voru allir vel skólaðir og hversu tært boxið var. Allar viðureignirnar voru mjög jafnar.
Hér eru úrslitin (sigurvegarar eru feitletraðir):
Björn Snævar Björnsson (HFR) vs Hafsteinn Smári Óskarsson (HFR)
Berglind Frances Aclipen (HFÆ) vs Valgerður Guðsteinsdóttir (HFÆ)
Hinrik R. Helgason (HFÆ) vs Sigurbjörn Richter (HFH)
Elías Shamsudin (HFÆ) vs Daníel Hauksson (HFH)
Björn Snævar Björnsson (HFR) vs Axel Logi Þorsteinsson (HFÆ)
Gunnar Gray (HFÆ) vs Kristján Orri Arnarsson (HFH)

Daníel Hauksson (HFH) - Hnefaleikamaður kvöldsins

Ásdís Rósa Gunnarsdóttir og Hafsteinn Smári Óskarsson
Síðasta hnefaleikamót ársins heppnaðist stórkostlega vel. Það var magnað andrúmsloft í Hnefaleikastöðinni í Reykjavík þegar tólf íslenskir boxarar léku listir sínar í hringnum í sex æsispennandi viðureignum.
Fyrstir í hringinn voru þeir félagsbræður Steinar Thors og Sigurjón Arnórsson (Hnefaleikafélagi Reykjavíkur), sem áttust við í sýningarviðureign. Sigurjón hafði betur eftir hressileg átök.

Adam Freyr Daðason (HFH) - Hnefaleikamaður kvöldsins
Adam Freyr Daðason (Hnefaleikafélagi Hafnarfjarðar) sýndi flotta takta gegn Hinriki R. Helgassyni (Hnefaleikafélaginu Æsir), en sá síðarnefndi átti ekki svar við geysilegri snerpu hafnfirðingsins í þetta sinn og var viðureignin af þeim sökum stöðvuð í annarri lotu. Adam var í lok kvölds valinn hnefaleikamaður kvöldsins.
Þær Ásdís Rósa Gunnarsdóttir og Berglind Frances Aclipen (HFÆ) mættust í þriðja sinn á einum og hálfum mánuði og áttu enn eina hörkurimmuna. Vart mátti á milli sjá en það var Berglind sem naut náðar dómaranna í þetta sinn. Frábær bardagi hjá þessum fræknu hnefaleikakonum.
Í næstu viðureign mættust á ný þeir Baldur Fannar Arnarson (HFH) og Þráinn Erlendsson (HFÆ). Þráinn sótti hart að Baldri í fyrstu lotu, en það fór heldur að halla undir fæti hjá honum er dró á leikinn og úthalds var þörf. Baldur var hvergi banginn, heldur veðraði hann storminn og þegar komið var fram í fjórðu og síðustu lotu var hann farinn að velgja Þráni all verulega undir uggum. Frábær frammistaða hjá Baldri, sem aðeins sextán ára gamall sigraði fullvaxta karlmann í annað sinn!
HAFSTEINN SEIGUR
Það er farið að líta út fyrir að það séu þrír hlutir í lífinu sem klikka aldrei: dauðinn, skattar og Hafsteinn Smári Óskarsson! Í kvöld stóð njarðvíkingurinn með náðargáfuna frammi fyrir erfiðusta áskorun sinni til þessa, hinum grjótharða Kristjáni Orra Arnarssyni (HFH). Þrátt fyrir að á þeim væri um 10 kg þyngdarmunur og að Kristján Orri sé höfðinu hærri gaf Hafsteinn sig hvergi þegar hafnfirðingurinn hrausti vildi njóta stærðar sinnar í fyrstu lotu, sem var nokkuð jöfn framan af. Þegar það var ljóst að Hafsteini yrði ekki bifað tók hann stjórnvölinn og hélt honum allt til loka. Kristján Orri hætti þó aldrei að reyna og var þetta vægast sagt flottur slagur hjá þeim piltum! Hafsteinn hefur nú á árinu sigrað alla keppinauta í sínum aldursflokki frá léttvigt (60 kg) upp í millivigt (75 kg) og fer taplaus inn í það nýja.
Lokaviðureigninni má helst lýsa sem skriðdrekahernaði! Vignir Ingi Bjarnason (HFÆ) mætti þá Alexei Pál Siggeirsson (HFÆ), en sá fyrrnefndi las kröftugar en tilbreytingalitlar höggadrífur félagsbróðurs síns auðveldlega og refsaði honum grimmilega með þungum höggum. Það var ekki liðið langt á aðra lotu þegar útséð var um úrslitin og lauk bardaganum svo með því að handklæðinu var hent inn eftir að Alexei var sleginn í gólfið með bylmingshöggi í þriðju lotu.
Hér eru úrslitin (sigurvegarar eru feitletraðir):
Steinar Thors (HR) vs Sigurjón Arnórsson (HR)
Adam Freyr Daðason (HFH) vs Hinrik R. Helgason (HFÆ) – besti boxarinn
Ásdís Rósa Gunnarsdóttir (HFR) vs Berglind Frances Aclipen (HFÆ)
Baldur Fannar Arnarson (HFH) vs Þráinn Erlendsson (HFÆ)
Hafsteinn Smári Óskarsson (HFR) vs Kristján Orri Arnarsson (HFH)
Vignir Ingi Bjarnason (HFÆ) vs Alexei Páll Siggeirsson (HFÆ)
Íslensku hnefaleikafélögin ferðust í vikunni til Danmerkur með sjö keppendur á árlegt galakvöld Team Bredahl í Holbæk. Það voru þau Adam Freyr Daðason, Ásdís Rósa Gunnarsdóttir, Baldur Fannar Arnarson, Daníel Hauksson, Gunnar Kolbeinn Kristinsson, Gunnar Þór Þórsson og Kristján Orri Arnarsson sem sóttu út fyrir landsteinana ásamt Bjarka Bragasyni, Daða Ástþórssyni og Fabio Quaradeghini þjálfurum.
Þeir Baldur og Adam unnu flotta sigra á andstæðingum sínum og það sama má segja um Daníel þótt dómaranir hafi ekki verið því sammála. Ásdís fór fjórar lotur í fyrsta skipti, mætti reyndari og stærri andstæðing og stóð sig með ágætum, en varð að sætta sig við tap á stigum. Kristján Orri landaði þriðja íslenska sigrinum og Gunnar Kolli gulltryggði kvöldið fyrir Ísland með yfirburðasigri á sínum andstæðing. Mótherji Gunnars Þórs Þórssonar náði ekki vigt og tapaði því sjálfkrafa án þess að keppt væri (hann var næstum því 9 kg þyngri en Gunni).
Hér eru úrslitin (sigurvegarar eru feitletraðir):
Baldur Fannar Arnarson vs Christian Doest (BK Tårnet 74)
Adam Freyr Daðason vs Fahim Safi (Nykøbing BK)
Daníel Hauksson vs Adnan Yassin (Karlebo BK)
Ásdís Rósa Gunnarsdóttir vs Nína Jørgensen (Lyngby BK)
Kristján Orri Arnarsson vs Mark Olsen (Team Bredahl)
Gunnar Kolbeinn Kristinsson vs Brian Johansen (Team Bredahl)
Gunnar Þór Þórsson vs Landry Kore (Team Bredahl)

Hafsteinn Smári Óskarsson, Daníel Þórðarson og Ásdís Rósa Gunnarsdóttir
Þau Daníel Þórðarson, Hafsteinn Smári Óskarsson og Ásdís Rósa Gunnarsdóttir tóku öll þátt í móti á vegum Hnefaleikafélags Hafnarfjarðar (HFH) fyrir hönd HFR nú í kvöld.
Daníel – sem ekki hefur stigið í hringinn síðan á Íslandsmótinu í vor – var dálítið ryðgaður og andstæðingurinn Arnar Már Kristjánsson (Hnefaleikafélagi Reykjavíkur) nýtti tækifærið og gerði mun meira framan af. Það fór þó að skína í keflvískt stál í síðari hluta annarrar lotu og Arnar missti stjórnvölinn. Þegar að lokum var komið vann Daníel nokkuð öruggan sigur.
Hafsteinn Smári steig næstur í hringinn gegn Vilhjálmi Gunnari Péturssyni (Hnefaleikafélaginu ÆSIR) og sýndi snilldartakta. Vilhjálmur var yfirvegaður mjög og valdi höggin vel þannig að fyrsta lota var nokkuð jöfn. Eftir það óx Hafsteini ásmegin. Hann skoraði ítrekað með snörpum og kraftmiklum höggum og stýrði fjarlægðinni. Ef Vilhjálmur lenti góðu höggi fékk hann það alltaf til baka með vöxtum. Báðir boxuðu þeir mjög flottan bardaga sem lauk með sigri Hafsteins.
Viðureign þeirra Ásdísar og Berglindar Frances Aclipen (HFÆ) var mjög spennandi og greinilegt að sú síðarnefnda var mun afslappaðri en þegar þær mættust fyrir mánuði síðan. Ásdís stýrði fjarlægðinni nokkuð vel fyrstu tvær loturnar og lenti hreinum stökum höggum þótt Berglind gerði henni skráveifu við og við. Í þriðju lotu gerði hún hins vegar meira en það og náði inn nokkrum dúndurflottum hægri handar höggum á Ásdísi. Þegar þriðju og síðustu lotu var lokið kom í ljós að þessi stórsókn Berglindar réði úrslitum og hún var úrskurðuð sigurvegari. Þær munu mætast í þriðja sinn á móti HFÆ eftir 2 vikur.
Annars er vert að minnast á stórskemmtilega sýningarviðureign þeirra félaga Adams Freys Daðasonar og Baldurs Fannars Arnarssonar úr HFH. Þótt vægast sagt hafi verið mikill stærðar og þyngdarmunur á þeim skemmtu þeir áhorfendum með mikilli keppnisgleði og afspyrnu góðri tækni.
Örvhenta séníið Hafsteinn Smári var svo valinn besti boxari kvöldsins.
Hér eru úrslitin (sigurvegarar eru feitletraðir):
Dagur Freyr Bjarnason (HFÆ) vs Guðmundur Guðmundsson (HFH)
Daníel Þórðarson (HFR) vs Arnar Már Kristjánsson (HR)
Hafsteinn Smári Óskarsson (HFR) vs Vilhjálmur G. Pétursson (HFÆ) – besti boxarinn
Adam Freyr Daðason (HFH) vs Baldur Fannar Arnarson (HFH)
Ásdís Rósa Gunnarsdóttir (HFR) vs Berglind Frances Aclipen (HFÆ)
Hinrik R. Hinriksson (HFÆ) vs Daníel Hauksson (HFH)
Finnur Kristjánsson (HFÆ) vs Kristján Orri Arnarsson (HFH)

(v-h, aftari röð) Hafsteinn Smári Óskarsson, Kristján Orri Arnarsson, Baldur Fannar Arnarson, Ásdís Rósa Gunnarsdóttir, Daníel Hauksson, Berglind Frances Aclipen, Vilhjálmur Gunnar Pétursson, Finnur Kristjánsson (v-h, fremri röð) Adam Freyr Daðason, Daníel Þórðarson, Dagur Freyr Bjarnason, Hinrik R. Helgason

Ásdís Rósa vann 3-0 sigur í kvöld
Íslandsmeistarinn Ásdís Rósa Gunnarsdóttir átti flottan sigur í lokaviðureign hnefaleikakvölds í boði Hnefaleikafélagsins ÆSIR. Andstæðingur hennar var Berglind Frances Aclipen og þær áttu sennilega flottastu viðureign kvöldsins. Þetta var mjög vel boxað og auðséð að Berglind mun veita Ásdísi harða keppni í vetur. Vonir eru um að þær mætist aftur í næsta mánuði.
Nýliðinn Dagur Freyr Bjarnason (HFÆ) sýndi meistaralega frammistöðu gegn okkar manni, Ástþóri Sindra Baldurssyni, sem enn er svolítið ryðgaður eftir sumarið. Dagur var valinn besti boxari kvöldsins og var vel að því kominn. Það er nokkuð ljóst að þeir þremenningar Dagur, Ástþór og Guðmundur Guðmundsson (HFH) munu berjast um toppsætið í fluguvigtinni fram að Íslandsmóti næsta vor.
Hér eru úrslitin (sigurvegarar eru feitletraðir):
Sigurbjörn Richter (HFH) vs Sigurður Evert Ármannsson (HFÆ)
Ástþór Sindri Baldursson (HFR) vs Guðmundur Guðmundsson (HFH)
Sigurbjörn Richter (HFH) vs Pétur Þór Sævarsson (HR)
Ástþór Sindri Baldursson (HFR) vs Dagur Freyr Bjarnason (HFÆ) – Besti boxarinn
Daníel Hauksson (HFH) vs Hinrik R. Helgason (HFÆ)
Mustafa Mikael Jobi (HFÆ) vs Valentyn Bukavin (HFÆ)
Gísli Rúnar Gunnarsson (HR) vs Ómar Annisius (HFÆ)
Ásdís Rósa Gunnarsdóttir (HFR) vs Berglind Frances Aclipen (HFÆ)

Björn og Pétur unnu báðir sigur í Hafnarfirði
Þeir Björn Snævar Björnsson og Pétur Ásgeirsson unnu báðir 3-0 sigur í viðureignum sínum í kvöld. Hafnfirðingurinn Baldur Fannar Arnarsson var valinn hnefaleikamaður kvöldsins og HFR óskar honum til hamingju með það!
Hér eru úrslitin (sigurvegarar eru feitletraðir):
Dagur Freyr Bjarnason (HFÆ) vs Guðmundur Guðmundsson (HFH)
Hinrik R. Helgason (HFÆ) vs Sigurbjörn Richter (HFH)
Ómar Annisius (HFÆ) vs Reynir Emilsson (HR)
Freyja Lambertsdóttir (HR) vs Arndís Birta Sigursteinsdóttir (HR)
Gunnar Þór Þórsson (HR) vs Gísli Rúnar Gunnarsson (HR)
Finnur Kristjánsson (HFÆ) vs Björn Snævar Björnsson (HFR)
Elías Shamsudin (HFÆ) vs Pétur Ásgeirsson (HFR)
Þráinn Ellertsson (HFÆ) vs Baldur Fannar Arnarsson (HFH) – besti boxarinn

Baldur Fannar Arnarsson (HFH) var valinn hnefaleikamaður kvöldsins.

Adam Freyr Daðason (HFH) og Hafsteinn Smári Óskarsson (HFR) áttu bardaga kvöldsins
Það var skemmtileg stemning á Ljósanæturkeppni HFR í gærkvöldi. Hægt verður að horfa á keppnina í heild sinni sporttv.is á morgun eða á mánudaginn.
Hér eru úrslitin (sigurvegarar eru feitletraðir):
Guðmundur Guðmundsson (HFH) vs Ástþór Sindri Baldursson (HFR)
Daníel Hauksson (HFH) vs Elías Shamsudin (HFÆ)
Kristján Orri Arnarson (HFH) vs Gunnar Gray (HFÆ)
Valentyn Bukavin (HFÆ) vs Tom Wolbers (HFR)
Marek Kaban (HFÆ) vs Gunnar Þór Þórsson (HR)
Danny Steiness (Team Denmark) vs Mustafa Mikael Jobi (HFÆ)
Rasmus Hansen (Team Denmark) vs Pétur Ásgeirsson (HFR)
Maria Jacobsen (Team Denmark) vs Arndís Birta Sigursteinsdóttir (HR)
Juri Jannissoo (f.h. HFÆ) vs Kenneth Nemming (f.h. HFR) – Besti boxarinn
Adam Freyr Daðason (HFH) vs Hafsteinn Smári Óskarsson (HFR) – Besti bardaginn

Sigurlið HFR
Úrslitakvöld Íslandsmeistaramótsins í hnefaleikum fór fram í Reykjanesbæ á laugardaginn var og keppt var um níu Íslandsmeistaratitla. Hnefaleikafélag Reykjaness (HFR) kom, sá og sigraði og sat eftir með fimm Íslandsmeistara.
Það voru þau Hafsteinn Smári Óskarsson, Ásdís Rósa Gunnarsdóttir, Björn Snævar Björnsson, Daníel Þórðarson og Árni Ísaksson sem hömpuðu titlunum og auk þess fengu þeir Daníel og Björn sérstakar viðurkenningar. Daníel var valinn hnefaleikamaður kvöldsins og Björn sá efnilegasti og voru þeir báðir vel að því komnir.
Þetta er hreint ótrúlega góð uppskera fyrir félagið sem hefur verið framúrskarandi í allan vetur.
Íslandsmeistarar kvöldsins
Léttvigt drengja (60 kg)
Hafsteinn Smári Óskarsson (HFR)
Veltivigt drengja (69 kg)
Gunnar Georg Gray (HFÆ)
Fjaðurvigt kvenna (57 kg)
Ásdís Rósa Gunnarsdóttir (HFR)
Léttveltivigt (64 kg)
Gunnar Þór Þórsson (HR)
Veltivigt (69 kg)
Björn Snævar Björnsson (HFR) – efnilegasti hnefaleikamaðurinn
Millivigt (75 kg)
Daníel Þórðarson (HFR) – hnefaleikamaður kvöldsins
Léttþungavigt (81 kg)
Árni Ísaksson (HFR)
Þungavigt (91 kg)
Gunnar Kolbeinn Kristinsson (HFÆ)
Yfirþungavigt (+91 kg)
Lárus Mikael Daníelsson (HFÍ)

HFR sigraði alla fjóra leiki sína á móti í Reykjanesbæ nú um helgina. Þrír danskir gestir flugu allir heim með tap í bókinni eftir óblíðar kveðjur frá íslenskum andstæðingum sínum. Líkast til er það í fyrsta skipti sem erlent lið fer sigurlaust af klakanum.
Hér eru úrslitin (sigurvegarar eru feitletraðir):
Léttvigt (60 kg)
Daníel Hauksson (HFH) vs Hinrik R. Helgason (HFÆ)
Fjaðurvigt (57 kg)
Linda Dögg Guðmundsdóttir (HFÆ) vs Ásdís Rósa Gunnarsdóttir (HFR)
Millivigt (75 kg)
Matthías Arnarson (HFÆ) vs Jón Pétur Vágseið (HR)
Veltivigt (69 kg)
Gunnar Gray (HFÆ) vs Pétur Ásgeirsson (HFR)
Millivigt (75 kg)
Jafet Örn Þorsteinsson (HFÆ) vs Sæþór Ólafur Pétursson (HFV)
Léttþungavigt (81 kg)
Mike Andreasen (Team Denmark) vs Mustafa Mikael Jobi (HFÆ)
Léttþungavigt (81 kg)
Steinar Thors (HR) vs Gunnar Davíð Gunnarsson (HFR)
Yfirþungavigt (91+kg)
Ricky Paustian (Team Denmark) vs Gunnar Kolli Kristinsson (HFÆ)
Veltivigt (69 kg)
Rasmus Borggren (Team Denmark) vs Björn Snævar Björnsson (HFR)
Ásdís & Kolli: USA 2010


