Hnefaleikafélag Reykjaness


Innritunardagur
02/09/2010, 22:30
Filed under: Tilkynningar

Það verður innritunardagur og opið hús hjá félaginu á mánudaginn milli kl. 18:00-20:00 í aðstöðu okkar í gömlu sundhöllinni við Framnesveg í Keflavík. Við verðum með posa á staðnum.

Comments Off


Vetrarstarfið að hefjast
24/08/2010, 9:34
Filed under: Myndir, Tilkynningar

Þessir strákar úr unglingahópnum æfðu áfram í sumar og koma sterkir inn í veturinn

Nú fer vetrarstarfið að hefjast og tökum við á móti nýjum iðkendum í tvo hópa á haustönn. Unglingahópur er fyrir krakka í unglingadeild grunnskólanna (fædd 1995-1997) og svo er annar hópur fyrir 16 ára og eldri (fædd 1994 eða fyrr). Sérstakur skráningardagur verður í byrjun september og auglýst verður um það síðar. Hægt er að ganga frá greiðslu og skráningu símleiðis í 868 2063 (Dagný) fyrir þann tíma.

Unglingahópur æfir kl. 17:00-18:00 mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga. Eldri iðkendur (byrjendur/framhald) æfa sömu daga frá 18:00-19:00.

Comments Off


Fitnessbox með Gústa
04/04/2010, 12:33
Filed under: Tilkynningar

Hafin er skráning í fitnessbox tíma með Ágústi Dearborn. Þetta verða tvö 6 vikna námskeið kl. 8:20-9:20 mánudaga, miðvikudaga og föstudaga og á laugardögum kl. 10:00. Skráning í síma 868-2063 (Dagný).

Comments Off


Hnefaleikamót í Reykjanesbæ 13. mars, kl. 20:00
11/03/2010, 0:26
Filed under: Tilkynningar, Viðburðir

Hnefaleikamót í Reykjanesbæ 13. mars

Comments Off


Hnefaleikafélag Reykjavíkur heldur keppni 6. mars
27/02/2010, 19:38
Filed under: Tilkynningar, Viðburðir

Hnefaleikamót í Reykjavík 6. mars

Comments Off


Íslandsmótið framundan
14/02/2010, 13:32
Filed under: Tilkynningar

Íslandsmótið í hnefaleikum verður haldið þann 17. apríl 2010. Næsta þriðjudag hefst átta vikna undirbúningur fyrir mótið og er algjör mætingarskylda á allar æfingar. Það er á ábyrgð keppenda að láta vita ef þeir komast ekki á settar æfingar og semja um það við þjálfara. Þetta eru frumskilyrði fyrir þátttöku á Íslandsmótinu fyrir hönd HFR.

Comments Off


Mótinu frestað
05/02/2010, 14:34
Filed under: Tilkynningar

Mótinu sem átti að vera annað kvöld hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Orsökin eru óvænt forföll nokkurra keppenda á síðustu stundu.

Comments Off


Hnefaleikamót í Reykjanesbæ 6. febrúar
28/01/2010, 17:35
Filed under: Tilkynningar, Viðburðir

Box í Reykjanesbæ

Comments Off


Hafsteinn Smári og Ásdís Rósa Hnefaleikafólk ársins 2009!
05/01/2010, 22:51
Filed under: Fréttir, Myndir, Tilkynningar
Ásdís Rósa Gunnarsdóttir og Hafsteinn Smári Óskarsson

Ásdís Rósa Gunnarsdóttir og Hafsteinn Smári Óskarsson

Þau Hafsteinn Smári Óskarsson og Ásdís Rósa Gunnarsdóttir, bæði frá Hnefaleikafélagi Reykjaness (HFR), voru í kvöld valin Hnefaleikamaður og Hnefaleikakona ársins 2009 í hófi ÍSÍ á Grand Hótel í Reykjavík.

HNEFALEIKAMAÐUR ÁRSINS 2009

Hafsteinn Smári Óskarsson

Hafsteinn Smári hefur verið ósigrandi í hringnum síðan haustið 2008. Frá því um áramótin síðustu hefur hann mætt og unnið sigur á öllum íslenskum keppinautum sínum í fjórum þyngdarflokkum, sem er óheyrt.

Á Íslandsmótinu sigraði hann Elías Shamsudin frá Hnefaleikafélaginu ÆSIR (HFÆ) og varð Íslandsmeistari í léttvigt (60 kg). Hann sigraði einnig besta léttveltivigtarboxara landsins (64 kg), Adam Frey Daðason frá Hnefaleikafélagi Hafnarfjarðar (HFH), Gunnar Georg Gray (HFÆ), Íslandsmeistarann í veltivigt (69 kg) tvívegis og nú síðast besta millivigtarboxarann (75 kg), Kristján Orra Arnarsson (HFH) þrátt fyrir að á þeim væri um 10 kg þyngdarmunur. HFH tók ekki þátt á Íslandsmótinu þetta árið og er það einungis af þeim sökum sem þeir Adam og Kristján eru ekki Íslandsmeistarar.

Hafsteinn vann einnig yfirburðasigur á Vilhjálmi Gunnar Péturssyni (HFÆ) í 69 kg flokki, þrátt fyrir nokkurn þyngdarmun og 13 ára aldursmun (Hafsteinn er 15 ára). Það er ólíklegt að það verði nokkurn tímann leikið eftir honum.

Hafsteinn er íþróttamaður fram í fingurgóma og hefur aldrei hopað undan nokkurri áskorun. Af þessum sökum er hann útnefndur Hnefaleikamaður ársins 2009.

HNEFALEIKAKONA ÁRSINS 2009

Ásdís Rósa Gunnarsdóttir

Það eru fáar íslenskar hnefaleikakonur sem hafa stigið eins oft í hringinn á einu ári og Ásdís Rósa gerði á árinu. Til þess hefur hún oftast nær þurft að berjast utan síns eiginlega þyngdarflokks, fjaðurvigtar (57 kg).

Í janúar mætti hún í öðrum bardaga sínum á ævinni þriðju bestu léttvigtarkonu (60 kg) Danmerkur, Maríu Jacobsen. Ásdís fór allar loturnar og stóð sig bara nokkuð bærilega miðað við töluverðan reynslu- og þyngdarmun. Hún nýtti reynsluna og stóð sig fantavel þegar hún mætti loksins einhverjum í sínum eigin þyngdarflokki, Lindu Dögg Guðmundsdóttur (HFÆ) og hafði betur á stigum á móti í mars. Þær
mættust svo aftur á Íslandsmótinu mánuði síðar og í þetta sinn vann Ásdís fullnaðarsigur þegar viðureignin var stöðvuð í annarri lotu.

Ekki gekk að finna Ásdísi andstæðing á Ljósanótt, þannig að hún bætti það upp með því að keppa fjórum sinnum á sex vikum í október og nóvember! Hún tók þríleik við veltivigtarkonuna (66 kg) Berglindi Frances Aclipen (HFÆ) og voru allir leikirnir jafnir og skemmtilegir. Ásdís sigraði þann fyrsta, en Berglind þann annan og þriðja líka, þótt sá síðasti hefði líkast til getað farið hvernig sem er. Á milli stríðanna við Berglindi fór hún til Danmerkur og mætti léttvigtarkonunni (60 kg) Nínu Jørgensen. Sú hefur átta ára reynslu af hnefaleikum og vann sigur á stigum.

Ásdísi Rósu er kjörin Hnefaleikakona ársins 2009 á þeim forsendum að hún er þrátt fyrir allt ósigruð í sínum þyngdarflokk, varð Íslandsmeistari á árinu, hefur stigið í hringinn oftar en flestir keppendur af báðum kynjum og er frábær íþróttamaður sem hefur sýnt mikinn metnað og framfarir á árinu öllu frá upphafi til enda.

Ásdís stefnir á þátttöku á Ólympíuleikunum í London 2012 og ætlar næstu tvo mánuðina út til Bandaríkjanna í æfingabúðir hjá Freddie Roach og félögum í Wild Card Gym.

Hnefaleikafélag Reykjaness óskar Hafsteini og Ásdísi innilega til hamingju með titlana og hlakkar til stærri og enn betri hluta á nýju ári!

Comments Off


Jólakveðja og fleira
21/12/2009, 20:44
Filed under: Tilkynningar

Gleðileg JólHnefaleikafélag Reykjaness óskar félagsmönnum sem og hnefaleikahreyfingunni allri gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári með þökk fyrir frábært samstarf á því sem er að líða.

JÓLAFRÍ
Frí verður frá æfingum hjá krökkum og unglingum og byrjendum/framhald frá 21. des – 10. janúar. Æfingar hefjast aftur mánudaginn 11. janúar.

ÆFINGABÚÐIR Á LAUGARVATNI
Jólafríi lýkur eftir árlegar æfingabúðir á Laugarvatni, 8-10. janúar. Æfingabúðirnar eru lokaðar og einungis ætlaðar þeim duglegustu úr keppnisliðinu. Frá okkur fara:

Árni Ísaksson
Ásdís Rósa Gunnarsdóttir
Björn Snævar Björnsson
Gunnar Davíð Gunnarsson
Hafsteinn Smári Óskarsson
Tom Wolbers

VIÐURKENNING FRÁ REYKJANESBÆ
Við minnum Íslandsmeistarana okkar (Árna Ísaksson, Ásdísi Rósu Gunnarsdóttur, Björn Snævar Björnsson, Daníel Þórðarson og Hafstein Smára Óskarsson) sérlega á að Íþróttamaður ársins í Reykjanesbæ verður valinn kl. 13:00 í Íþróttahúsinu í Njarðvík þann 31. desember næstkomandi. Allir Íslandmeistarar í Reykjanesbæ árið 2009 fá sérstaka viðurkenningu.

Athöfnin fer fram í Íþróttahúsinu í Njarðvík og hefst kl. 13:00.  Við sama tækifæri verða útnefndir íþróttamenn ársins í hverri íþróttagrein, ásamt því að allir Íslandsmeistarar (sem eru rúmlega 200 þetta árið) í Reykjanesbæ árið 2009, fá viðurkenningu.

Comments Off



Follow

Get every new post delivered to your Inbox.