Hnefaleikafélag Reykjaness


Hafsteinn Smári nú tvöfaldur Íslandsmeistari
21/04/2010, 23:59
Filed under: Úrslit, Fréttir

Hafsteinn Smári Óskarsson
Hnefaleikamaður ársins, Hafsteinn Smári Óskarsson, varð í kvöld tvöfaldur Íslandsmeistari í hnefaleikum þegar hann sigraði Gunnar Gray Georgsson frá Hnefaleikafélaginu ÆSIR (HFÆ) 3-0. Í undanúrslitunum sem fram fóru á laugaradaginn sigraði hann Hinrik Ragnar Helgason (HFÆ), einnig 3-0.

Björn Snævar Björnsson tapaði naumlega fyrir Gunnari Þór Þórssyni frá Hnefaleikafélagi Reykjavíkur (HR) 2-1 og Gunnar Davíð Gunnarsson tapaði fyrir Valentyn Bukavin (HFÆ) 3-0.

Comments Off


Vel boxað í Hafnarfirði
24/01/2010, 1:22
Filed under: Úrslit, Fréttir, Myndir
Björn með gullið

Björn með gullið

Það var gaman að fylgjast með keppendum á móti Hnefaleikafélags Hafnarfjarðar (HFH) í kvöld, bæði því hvað þeir voru allir vel skólaðir og hversu tært boxið var. Allar viðureignirnar voru mjög jafnar.

Hér eru úrslitin (sigurvegarar eru feitletraðir):

Björn Snævar Björnsson (HFR) vs Hafsteinn Smári Óskarsson (HFR)
Berglind Frances Aclipen (HFÆ) vs Valgerður Guðsteinsdóttir (HFÆ)
Hinrik R. Helgason (HFÆ) vs Sigurbjörn Richter (HFH)
Elías Shamsudin (HFÆ) vs Daníel Hauksson (HFH)
Björn Snævar Björnsson (HFR) vs Axel Logi Þorsteinsson (HFÆ)
Gunnar Gray (HFÆ) vs Kristján Orri Arnarsson (HFH)

Daníel Hauksson (HFH) - hnefaleikamaður kvöldsins

Daníel Hauksson (HFH) - Hnefaleikamaður kvöldsins

Comments Off


Þrír diplomaboxarar útskrifaðir í Hafnarfirði í dag
23/01/2010, 17:28
Filed under: Fréttir, Myndir, Viðburðir
Jón Þór Jakobsson, Aron Ingi Gestsson og Leó Smári Sigurjónsson ásamt Gunnari Davíð Gunnarsyni þjálfara

Jón Þór Jakobsson, Aron Ingi Gestsson og Leó Smári Sigurjónsson ásamt Gunnari Davíð Gunnarsyni þjálfara

Fyrri hluti hnefaleikamótsins í Hafnarfirði fór fram í dag, en þar voru 5 diplomaleikir. Keppendurnir okkar þrír komu allir heim með ný diploma. Í kvöld kl. 20:00 verður svo keppt í áhugamannahnefaleikum á sama stað, Dalshrauni 10. Aðgangseyrir er 1.000 kr.

Comments Off


Ásdís og Kolli farin til USA
11/01/2010, 19:31
Filed under: Fréttir, Myndir
Ásdís og Kolli á flugvellinum

Ásdís og Kolli á flugvellinum

Ásdís Rósa Gunnarsdóttir (HFR) lagði í dag af stað í tveggja mánaða æfingaferð til Bandaríkjanna þar sem hún verður undir handleiðslu Freddie Roach og félaga í Wild Card Gym. Með henni í för er Gunnar Kolbeinn Kristinsson (HFÆ).

Hægt verður að fylgjast með Ásdísi og Kolla á bloggsíðu þeirra um ferðina: Smellið hér.

Comments Off


Fréttir Sjónvarps fjalla um æfingabúðir á Laugarvatni
10/01/2010, 20:39
Filed under: Fréttir, Myndbönd, Viðburðir

Æfingabúðir á Laugarvatni

Smellið á mynd til að skoða frétt

Comments Off


Hafsteinn Smári og Ásdís Rósa Hnefaleikafólk ársins 2009!
05/01/2010, 22:51
Filed under: Fréttir, Myndir, Tilkynningar
Ásdís Rósa Gunnarsdóttir og Hafsteinn Smári Óskarsson

Ásdís Rósa Gunnarsdóttir og Hafsteinn Smári Óskarsson

Þau Hafsteinn Smári Óskarsson og Ásdís Rósa Gunnarsdóttir, bæði frá Hnefaleikafélagi Reykjaness (HFR), voru í kvöld valin Hnefaleikamaður og Hnefaleikakona ársins 2009 í hófi ÍSÍ á Grand Hótel í Reykjavík.

HNEFALEIKAMAÐUR ÁRSINS 2009

Hafsteinn Smári Óskarsson

Hafsteinn Smári hefur verið ósigrandi í hringnum síðan haustið 2008. Frá því um áramótin síðustu hefur hann mætt og unnið sigur á öllum íslenskum keppinautum sínum í fjórum þyngdarflokkum, sem er óheyrt.

Á Íslandsmótinu sigraði hann Elías Shamsudin frá Hnefaleikafélaginu ÆSIR (HFÆ) og varð Íslandsmeistari í léttvigt (60 kg). Hann sigraði einnig besta léttveltivigtarboxara landsins (64 kg), Adam Frey Daðason frá Hnefaleikafélagi Hafnarfjarðar (HFH), Gunnar Georg Gray (HFÆ), Íslandsmeistarann í veltivigt (69 kg) tvívegis og nú síðast besta millivigtarboxarann (75 kg), Kristján Orra Arnarsson (HFH) þrátt fyrir að á þeim væri um 10 kg þyngdarmunur. HFH tók ekki þátt á Íslandsmótinu þetta árið og er það einungis af þeim sökum sem þeir Adam og Kristján eru ekki Íslandsmeistarar.

Hafsteinn vann einnig yfirburðasigur á Vilhjálmi Gunnar Péturssyni (HFÆ) í 69 kg flokki, þrátt fyrir nokkurn þyngdarmun og 13 ára aldursmun (Hafsteinn er 15 ára). Það er ólíklegt að það verði nokkurn tímann leikið eftir honum.

Hafsteinn er íþróttamaður fram í fingurgóma og hefur aldrei hopað undan nokkurri áskorun. Af þessum sökum er hann útnefndur Hnefaleikamaður ársins 2009.

HNEFALEIKAKONA ÁRSINS 2009

Ásdís Rósa Gunnarsdóttir

Það eru fáar íslenskar hnefaleikakonur sem hafa stigið eins oft í hringinn á einu ári og Ásdís Rósa gerði á árinu. Til þess hefur hún oftast nær þurft að berjast utan síns eiginlega þyngdarflokks, fjaðurvigtar (57 kg).

Í janúar mætti hún í öðrum bardaga sínum á ævinni þriðju bestu léttvigtarkonu (60 kg) Danmerkur, Maríu Jacobsen. Ásdís fór allar loturnar og stóð sig bara nokkuð bærilega miðað við töluverðan reynslu- og þyngdarmun. Hún nýtti reynsluna og stóð sig fantavel þegar hún mætti loksins einhverjum í sínum eigin þyngdarflokki, Lindu Dögg Guðmundsdóttur (HFÆ) og hafði betur á stigum á móti í mars. Þær
mættust svo aftur á Íslandsmótinu mánuði síðar og í þetta sinn vann Ásdís fullnaðarsigur þegar viðureignin var stöðvuð í annarri lotu.

Ekki gekk að finna Ásdísi andstæðing á Ljósanótt, þannig að hún bætti það upp með því að keppa fjórum sinnum á sex vikum í október og nóvember! Hún tók þríleik við veltivigtarkonuna (66 kg) Berglindi Frances Aclipen (HFÆ) og voru allir leikirnir jafnir og skemmtilegir. Ásdís sigraði þann fyrsta, en Berglind þann annan og þriðja líka, þótt sá síðasti hefði líkast til getað farið hvernig sem er. Á milli stríðanna við Berglindi fór hún til Danmerkur og mætti léttvigtarkonunni (60 kg) Nínu Jørgensen. Sú hefur átta ára reynslu af hnefaleikum og vann sigur á stigum.

Ásdísi Rósu er kjörin Hnefaleikakona ársins 2009 á þeim forsendum að hún er þrátt fyrir allt ósigruð í sínum þyngdarflokk, varð Íslandsmeistari á árinu, hefur stigið í hringinn oftar en flestir keppendur af báðum kynjum og er frábær íþróttamaður sem hefur sýnt mikinn metnað og framfarir á árinu öllu frá upphafi til enda.

Ásdís stefnir á þátttöku á Ólympíuleikunum í London 2012 og ætlar næstu tvo mánuðina út til Bandaríkjanna í æfingabúðir hjá Freddie Roach og félögum í Wild Card Gym.

Hnefaleikafélag Reykjaness óskar Hafsteini og Ásdísi innilega til hamingju með titlana og hlakkar til stærri og enn betri hluta á nýju ári!

Comments Off


Frábær uppskera á árinu!
31/12/2009, 22:18
Filed under: Fréttir, Myndir
Íslandsmeistarar 2009 (v-h): Björn Snævar Björnsson, Ásdís Rósa Gunnarsdóttir, Árni Ísaksson og Hafsteinn Smári Óskarsson. Á myndina vantar Daníel Þórðarson.

Íslandsmeistarar 2009 (v-h): Björn Snævar Björnsson, Ásdís Rósa Gunnarsdóttir, Árni Ísaksson og Hafsteinn Smári Óskarsson. Á myndina vantar Daníel Þórðarson.

Íþróttabandalag Reykjanesbæjar (ÍRB), í samstarfi við Reykjanesbæ, heiðraði í dag alla Íslandsmeistara aðildarfélaga sinna. Þau Árni Ísaksson, Ásdís Rósa Gunnarsdóttir, Björn Snævar Björnsson, Daníel Þórðarson og Hafsteinn Smári Óskarsson hlutu öll viðurkenningar. Hafsteinn Smári var auk þess valinn Hnefaleikamaður Reykjanesbæjar og fékk bikar að launum.

Þau Hafsteinn Smári og Ásdís Rósa eru einnig tilnefnd til Hnefaleikamanns og Hnefaleikakonu ársins 2009 á landsvísu. ÍSÍ mun kynna val sérsambanda og séríþróttanefnda á Íþróttafólki ársins 2009 í hverri grein og heiðra við athöfn á Grand Hótel í Reykjavík þriðjudaginn 5. janúar 2010.

Comments Off


Vel heppnað byrjendamót í diplomahnefaleikum
14/12/2009, 6:55
Filed under: Fréttir

Héðinn Máni og Gunnar Davíð þjálfari

Nú á laugardaginn fór fram byrjendamót í diplomahnefaleikum (10-15 ára). Keppendur voru 29 talsins frá þremur félögum (Hnefaleikafélagi Hafnarfjarðar, Hnefaleikafélagi Reykjaness og Hnefaleikafélaginu ÆSIR) og voru alls 19 æfingaleikir í þremur aldursflokkum. Allir keppendur stóðu sig frábærlega og var drengileg framkoma þeirra íþróttinni til sóma.

Fyrir hönd Hnefaleikafélags Reykjaness (HFR) kepptu Aron Ingi Gestsson, Einar Óli Einarsson, Guðmundur Víðisson, Helgi Hrafn Emilsson, Héðinn Máni Sigurðsson, Leó Smári Sigurjónsson, Reynir Heiðdal Benediktsson, Sigurður Grétar Sigurðsson og Þráinn Andreuson.

HFR þakkar foreldrum og öðrum aðstandendum, þjálfurum, keppendum, dómurum og starfsfólki fyrir hreint frábæran dag.

Við viljum einnig þakka Sportbúð Óskars fyrir það að gefa okkur æfingavesti á strákana.

Comments Off


Árni er kominn heim
01/12/2009, 13:57
Filed under: Fréttir

Árni Ísaksson

Árni Ísaksson

Árni Ísaksson er kominn heim úr víking frá Bretlandi þar sem hann keppti í MMA keppninni OMMAC 3: Only the Brave. Andstæðingurinn var brasilíumaðurinn Luis Dutre Jr og áttust þeir við um heimsmeistaratitil í 77 kg flokki.

Hér er frétt FIGHTERS ONLY Magazine um bardagann:

“The Olympia became home to one of the best fights to take place within UK MMA. Billed as a World Welterweight title fight between tough Brazilian Black Belt Luis ‘Bessouro’ Dutre Jr and Iceland’s own Ice Viking Arni Isaksson, both fighters had the entire venue applauding and giving both fighters a standing ovation once the fight had finished.

After a 2 year lay off, Arni Isaksson showed no sign of any inactivity as he looked to steam through the Brazilian Jiu Jitsu blackbelt. Showing no fear and constantly looking to attack, Isaksson pressured the Brazilian with lethal bodyshots and effective ground and pound. Dutre using his effective counter punching scores takedowns in every round, only looking for a submission in the third which proved ineffective.

Dropping Dutre in the first round with big shots after eating a well timed knee, Isaksson shows how much power he had in his hands by dropping Dutre again in the third with ill intentioned bodyshots which had the crowd wincing.  Dutre, proving he was as efficient on his feet, times and scores with a couple of big knees as well as a headkick which rocks Isaksson in the first round but his main tool being able to score the takedowns when it really mattered.

A well fought match in which either fighter could have easily won, a decision victory goes to Luis Dutre Jr after a 3 round war easily being the best fight in OMMAC’s 3 events.”

Við hjá HFR erum öll stolt af Árna og þessum frábæra árangri! Nú taka bara enn betri hlutir við á nýju ári!

Comments Off


Enn sigrar Hafsteinn Smári
29/11/2009, 3:11
Filed under: Úrslit, Fréttir, Myndir
Ásdís Rósa Gunnarsdóttir og Hafsteinn Smári Óskarsson

Ásdís Rósa Gunnarsdóttir og Hafsteinn Smári Óskarsson

Síðasta hnefaleikamót ársins heppnaðist stórkostlega vel. Það var magnað andrúmsloft í Hnefaleikastöðinni í Reykjavík þegar tólf íslenskir boxarar léku listir sínar í hringnum í sex æsispennandi viðureignum.

Fyrstir í hringinn voru þeir félagsbræður Steinar Thors og Sigurjón Arnórsson (Hnefaleikafélagi Reykjavíkur), sem áttust við í sýningarviðureign. Sigurjón hafði betur eftir hressileg átök.

Adam Freyr Daðason (HFH) - Hnefaleikamaður kvöldsins

Adam Freyr Daðason (HFH) - Hnefaleikamaður kvöldsins

Adam Freyr Daðason (Hnefaleikafélagi Hafnarfjarðar) sýndi flotta takta gegn Hinriki R. Helgassyni (Hnefaleikafélaginu Æsir), en sá síðarnefndi átti ekki svar við geysilegri snerpu hafnfirðingsins í þetta sinn og var viðureignin af þeim sökum stöðvuð í annarri lotu. Adam var í lok kvölds valinn hnefaleikamaður kvöldsins.

Þær Ásdís Rósa Gunnarsdóttir og Berglind Frances Aclipen (HFÆ) mættust í þriðja sinn á einum og hálfum mánuði og áttu enn eina hörkurimmuna. Vart mátti á milli sjá en það var Berglind sem naut náðar dómaranna í þetta sinn. Frábær bardagi hjá þessum fræknu hnefaleikakonum.

Í næstu viðureign mættust á ný þeir Baldur Fannar Arnarson (HFH) og Þráinn Erlendsson (HFÆ). Þráinn sótti hart að Baldri í fyrstu lotu, en það fór heldur að halla undir fæti hjá honum er dró á leikinn og úthalds var þörf. Baldur var hvergi banginn, heldur veðraði hann storminn og þegar komið var fram í fjórðu og síðustu lotu var hann farinn að velgja Þráni all verulega undir uggum. Frábær frammistaða hjá Baldri, sem aðeins sextán ára gamall sigraði fullvaxta karlmann í annað sinn!

HAFSTEINN SEIGUR

Það er farið að líta út fyrir að það séu þrír hlutir í lífinu sem klikka aldrei: dauðinn, skattar og Hafsteinn Smári Óskarsson! Í kvöld stóð njarðvíkingurinn með náðargáfuna frammi fyrir erfiðusta áskorun sinni til þessa, hinum grjótharða Kristjáni Orra Arnarssyni (HFH). Þrátt fyrir að á þeim væri um 10 kg þyngdarmunur og að Kristján Orri sé höfðinu hærri gaf Hafsteinn sig hvergi þegar hafnfirðingurinn hrausti vildi njóta stærðar sinnar í fyrstu lotu, sem var nokkuð jöfn framan af. Þegar það var ljóst að Hafsteini yrði ekki bifað tók hann stjórnvölinn og hélt honum allt til loka. Kristján Orri hætti þó aldrei að reyna og var þetta vægast sagt flottur slagur hjá þeim piltum! Hafsteinn hefur nú á árinu sigrað alla keppinauta í sínum aldursflokki frá léttvigt (60 kg) upp í millivigt (75 kg) og fer taplaus inn í það nýja.

Lokaviðureigninni má helst lýsa sem skriðdrekahernaði! Vignir Ingi Bjarnason (HFÆ) mætti þá Alexei Pál Siggeirsson (HFÆ), en sá fyrrnefndi las kröftugar en tilbreytingalitlar höggadrífur félagsbróðurs síns auðveldlega og refsaði honum grimmilega með þungum höggum. Það var ekki liðið langt á aðra lotu þegar útséð var um úrslitin og lauk bardaganum svo með því að handklæðinu var hent inn eftir að Alexei var sleginn í gólfið með bylmingshöggi í þriðju lotu.

Hér eru úrslitin (sigurvegarar eru feitletraðir):

Steinar Thors (HR) vs Sigurjón Arnórsson (HR)
Adam Freyr Daðason (HFH) vs Hinrik R. Helgason (HFÆ) – besti boxarinn
Ásdís Rósa Gunnarsdóttir (HFR) vs Berglind Frances Aclipen (HFÆ)
Baldur Fannar Arnarson (HFH) vs Þráinn Erlendsson (HFÆ)
Hafsteinn Smári Óskarsson
(HFR) vs Kristján Orri Arnarsson (HFH)
Vignir Ingi Bjarnason
(HFÆ) vs Alexei Páll Siggeirsson (HFÆ)

Comments Off



Follow

Get every new post delivered to your Inbox.